Í gær
tilkynnti kvikmyndamiðstöð Íslands um
styrkúthlutanir til væntanlegra
verkefna. Alls fá sjö bíómyndir
vilyrði fyrir framlagi og tvær fá
staðfestan styrk, samtals níu
kvikmyndir. Ein þeirra mynda sem fékk
vilyrði fyrir styrk er Í takt við
tímann, sem mun vera sjálfstætt
framhald Stuðmannamyndarinnar sígildu,
Með allt á hreinu.
Það er fyrirtæki
Ágústs Guðmundssonar, Ísfilm, sem
framleiðir og leikstýrir hann einnig,
en hann leikstýrði einnig Með allt á
hreinu.
"Stuðmenn eru
einmitt nýbúnir að semja lag, sem ber
sama titil og myndin," upplýsir
Ágúst. "En það er náttúrulega
ekki komið út."
Ágúst segir myndina
vera sjálfstætt framhald Með allt á
hreinu, þar sem sömu persónur munu
láta að sér kveða á nýjan leik.
"En nú eru þær
orðnar tuttugu árum eldri," segir
Ágúst. "Og búnar að taka ýmsum
breytingum eins og gengur og
gerist."
Svipuðu verklagi
verður beitt við gerð þessarar myndar
og þeirrar fyrri.
"Að sumu leyti
erum við byrjuð að vinna þetta á
þann hátt," staðfestir Ágúst.
"Við byrjuðum að vinna að
handritinu á vinnufundum sem ég
kallaði til í janúar. Síðan höfum
við hist reglulega. Við höfum líka
mikinn hug á að byggja þetta á spuna
eins og fyrri myndina. Svo verður
náttúrulega allsráðandi þessi
húmor, sem hópurinn er þekktur fyrir.
Þannig að við erum ekki mjög fjarri
þessum upphaflegu aðferðum."
Vilyrði til
myndarinnar eru 30 milljónir króna en
áætlaður framleiðslukostnaður er 75
milljónir.
Félagsmálafrömuðurinn
og framkvæmdaforkólfurinn Jakob
Frímann Magnússon er að vonum
kampakátur með styrkinn.
"Við komum nú
glöð úr vinnubúðum, með fullt af
nýju efni í farteskinu, sem á eftir
að nýtast vel í myndina," segir
hann.
Jakob segir
undirbúning fyrir þetta verkefni hafa
tekið tvö til þrjú ár, líkt og var
með fyrri myndina. "Við erum auk
þess klár með eitt handrit í
viðbót. Við horfum til lengri tíma
með þessi mál," segir Jakob
leyndardómsfullri röddu. "Myndin
heitir Í takt við tímann og það má
segja að í því geti falist ákveðin
andhverfa," segir hann svo að lokum
og brosir.
Fyrstu tökur á Í
takt við tímann eru áætlaðar í
Tívolíinu í Kaupmannahöfn í haust.
|