Stuðmenn - holdgervingar póst-módernismans á Íslandi
Það sem einkennir helst
tónlist Stuðmanna er að hún á sér engin takmörk,
er hvorki bundin við stíl, tíðaranda né tískusveiflur. Hún
leyfir sér að
vera utan allra landamæra og að fara á móti ríkjandi stefnum
og straumum
hverju sinni.
Á hápunkti hippatímabilsins, þegar Stuðmenn voru stofnaðir,
voru
hljómsveitir almennt klæddar í hippamussur og Afghanpelsa,
syngjandi um ást,
frið og kærleika í þunglamalegum sýrurokksumgjörðum og
lengri rokkverkum.
Stuðmenn fóru þvert á þetta með því að klæðast
þröngum og snjáðum
borgaralegum jakkafötum með bindi um hálsinn og tónlistin var
bein andhverfa
þess sem þá var í gangi Fyrsta smáskífa sveitarinnar Honey
will you marry
me, var t.a.m. bandarísk hallærissveifla með heiðskýru og
glaðbeittu
yfirbragði. Í öðrum listgreinum á borð við myndlist og
bókmenntir er stefna
eða stíll þar sem vitnað er í eldri stefnur og allt er
leyfilegt nefndur
´póst-módernismi´. Því mætti með réttu kalla tónlist
Stuðmanna
´póst-móderníska´.
Textar Stuðmanna og yrkisefni eru að sama skapi landamæralaus,
en eiga
það sammerkt með hinum frjálsmannlegu
tónlistarstílbrögðum sveitarinnar að
vera oft á tiðum blandnir spaugi og hárfínu háði. Sveitin
hefur jafnan
leitast við að höfða til allra aldurshópa og allra stétta
og afkima
samfélagsins. Þannig mætti segja að lagið og textinn ´Honey
will you marry
me´ hafi verið á yfirborðinu heiðskýr og græskulaus og
þannig meðtók stór
hluti fólks lagið. Hinir djúphyggnari skildu hins vegar að
þarna var verið
að gantast með einfeldningslegan og bláeygan tónlistarsmekk
og stílbrögð
kynslóðarinnar á undan, þ.e. kynslóðar foreldra Stuðmanna.
Aðrir lásu enn
flóknari merkingar í þetta og önnur lög sveitarinnar.
Þannig mætti segja að textar sveitarinnar væru almennt
einfaldir og
auðskiljanlegir á yfirborðinu, en blandnir lævísum
skírskotunum, háði og
jafnvel undirhyggju.
Helstu áhrifavaldar Stuðmanna mundu vafalítið teljast The
Beatles, en
þeir byggðu sín verk gjarnan á e.k. heildarhyggju (concepti)
, sbr. Sgt.
Peppers Heart Club Band, Let it be, Abbey Road o.s.frv.
Stuðmenn hafa gjarnan unnið útfrá ákveðnum hugmyndum um
heildarverk, sbr.
Sumar á Sýrlandi, Tívolí, Með allt á hreinu o.s.frv.
Aðrir áhrifavaldar mundu teljast íslenskar sveitir á borð
við Trúbrot og
Flowers, Dáta, Tóna, Hljómsveit Svavars Gests, Hljómsveit
Ólafs Gauks
ásamt Svanhildi, KK sextett og Hauk Morthens.
Erlendir áhrifavaldar aðrir mundu teljast Frank Zappa, Monty
Python, Pink
Floyd, Jimi Hendrix, Led Zeppelin, Mrs. Miller og fleiri
gamanvísnasöngvarar, Willie Nelson, Liberace, Jack Bruce, Paul
Simon, Syd
Barret, Frank Sinatra. Jim Morrisson, Janis Joplin, David Bowie,
Robert
Johnson, Kevin Ayers, Long John Baldry og Rolling Stones.
Tengsl okkar við sambærilegar stefnur eða hljómsveitir
erlendis væru
helst hin andlegu tengsl við frjálslyndi og
´póst-modernisma´ bresku
Bítlanna, hverra trymbill Ringo Starr heimsótti okkur í
Atlavík 1984.
Sömuleiðis var ýmsum okkar á mótunarskeiðI okkar afar
hlýtt til Long John
Baldry ( Hoochie Coochie Men, Bluesology, Steampacket) og Kevin
Ayers (Soft
Machine) á tímabili og a.m.k. einn okkar starfaðI með þeim
listamönnum í
Bretlandi um hríð. Þá hafa a.m.k. tveir trymblar Frank Zappa
starfað með
Stuðmönnum eða meðlimum þeirra, þeir Vince Colaiuta og
David Logeman. Þá
hafa ýmisir hljóðfæraleikarar úr herbúðum Pink Floyd
starfað með sumum
okkar, t.a.m. Steve Sidelnyk og Tim Jeffries.
Póst-módernisminn lifir enn góðu lífi jafnt meðal ýmissa
erlendra listamanna
og hinna íslensku Stuðmanna. Kannski er það lykillinn að
leyndarmáli
Stuðmanna: Þú getur gert hvað sem er, hvernig sem er ,
hvenær sem er, óháð
ríkjandi stefnum og straumum.
Stuðmenn eru þannig lifandi holdgervingar póst-módernismans
á Íslandi.
Með bestu kveðjum,
Jakob Frímann Magnússon